Collection: Barnaskokkar

Barnaskokkarnir eru hannaðir af Elvu Maríu Káradóttur sem gaf Tau frá Tógo hönnunina. Hún fór einnig með okkur til Tógó til að kenna nemendum á verkstæðinu að vinna eftir sniði.

Skokkarnir eru í tveimur síddum og eru fyrir börn frá tveggja ára aldri upp í 10 ára, alveg eftir stærð hvers og eins barns. Þetta er vítt og þægilegt snið sem í raun vex með barninu.

Það er sama vídd yfir bringuna á báðum stærðum:

41 cm á milli neðri hluta handarkrikans. Minni stærðin er 58 cm að sídd og stærri stærðin er 69 cm að sídd, mælt frá axlarsaumi.

 

Tau frá Tógó selur vörur sem saumaðar eru á saumastofu heimilis systur Victorine fyrir munaðarlaus börn í Tógó. Allur ágóði fer til heimilisins.